Loksins framkvæmdir á KR svæðinu

Lagningu nýs gervigrass er nú lokið og aðeins verið að ganga frá síðustu smáatriðum. Það er því ljóst að æfingar geta loks hafist síðar í vikunni. Gríðarlegt umbótamál fyrir KR, enda ljóst misserum saman að gamla gervigrasið var langt í frá fullnægjandi og í raun ónýtt. Mikilvægum áfanga í framkvæmdamálum Knattspyrnufélagsins náð.


Öðrum gríðarlega mikilvægum áfanga var sömuleiðis náð í þessari viku þegar nýtt fjölnota íþróttahús KR var boðið út á Evrópska efnahagssvæðinu. Nýja húsið verður næstum 7000 fermetrar að stærð.



Það er því loksins komin alvöru hreyfing á framkvæmdamál Knattspyrnufélagsins sem er mikið fagnaðarefni. Stjórn og starfsmenn félagsins munu að sjálfsögðu halda áfram að fylgja framkvæmdamálunum eftir, því enn er því miður langt í land að aðstaðan verði með þeim hætti að við getum vel við unað – en þangað stefnum við að sjálfsögðu.


Þórhildur Garðarsdóttir

Formaður Knattspyrnufélags Reykjavíkur

Share by: