Gunnar Einarsson og Ívar Ingimarsson hafa skrifað undir áframhaldandi samning við KR. Eins og KR-ingar vita stýrðu Gunni og Ívar kvennaliðinu í sumar og komu liðinu upp um deild og munu þeir því stýra liðinu í Lengjudeildinni næsta sumar. Þeir eru frábært teymi og er gaman að fylgjast með metnaðnum sem þeir hafa fyrir félaginu.
Á sama tíma var einnig gengið frá samningi við Gunnar að hann verði yfirþjálfari yngri flokka kvenna og Ívar mun stýra afreksþjálfun félagsins.
"Það er mikið gleðilefni að tilkynna um áframhaldandi ráðningar þeirra Gunnars Einarssonar og Ívars Ingimarssonar en þeir munu áfram stýra meistaraflokki kvenna á komandi tímabili. Þá mun Gunnar jafnfram gegna starfi yfirþjálfara yngri flokka kvenna og Ívar sem afrekarsþjálfari.
Þá félaga þarf vart að kynna fyrir KR-ingum. Gunnar lék m.a. um árabil með meistaraflokki KR en Gunnar hefur þjálfað hjá okkur undanfarin ár. Ívar er þaulreyndur fyrrum landsliðsmaður sem lék sem atvinnumaður um árabil. Ívar á að baki 73 leiki í ensku úrvaldsdeildinni og mun fleiri í enskri deildarkeppni.
Það er ljóst að leikmenn okkar eru í góðum höndum og bindum við miklar vonir við áframhaldandi samstarf." segir Páll Kristjánsson formaður knd. KR.
📸Mummi Lú
Ertu með góða hugmynd,
eða ábendingu?
Þú getur líka sent okkur
almenna fyrirspurn
- einelti eða kynferðisleg áreitni og ofbeldi