Gauti Guðmundsson að gera frábæra hluti á meistaramótinu

Sonja Hlín Arnarsdóttir • apr. 17, 2024

Landsliðsmaðurinn og KR-ingurinn Gauti Guðmundsson endaði í 13. sæti í svigi á Lúxemborgíska meistaramótinu, sem haldið var í Val d‘Isére í Frakklandi, eftir að hafa verið með rásnúmer 34 og náð 30 sæti eftir fyrri ferð.

Gauti notfærði sér það að starta fyrstur í seinni ferð og gaf allt í botn og fékk lang besta tímann í þeirri ferð og keyrði sig upp um 17 sæti.

Fyrir mótið fékk hann 29.27 FIS punkta sem er einnig hans besti árangur á ferlinum. Það er stór áfangi að skora undir 30 FIS punkta og því eru okkar menn að standa sig gríðarlega vel.


"Ég er mjög glaður með árangurinn, gaman að sjá hvernig þrotlaus vinna og æfingar yfir síðastliðið ár skila sér. Núna er planið bara að gefa ennþá meira í þetta, æfa vel í sumar, og koma ennþá sterkari inn í næsta tímabil" sagði Gauti eftir mótið. 


Frétt tekin af vef Skíðasambands Íslands.


Share by: