Emmi leggur skóna á hilluna og tekur við stöðu aðstoðarþjáfara

Fyrirliðinn okkar, Theodór Elmar Bjarnason, Emmi, hefur ákveðið að leggja skóna á  hilluna og taka að sér stöðu aðstoðarþjálfara meistaraflokks karla. Emmi á langan feril sem knattspyrnumaður, hann fór ungur út í atvinnumennsku til Celtic í Skotlandi þaðan fór hann til Lyn í Osló, IFK Gautaborg, Randers FC, AGF, Elazığspor, Gazişehir Gaziantep, Akhisarspor og Lamia áður en hann kom aftur heim í KR árið 2021. Emmi hefur spilað 120 leiki fyrir KR og skorað 12 mörk, auk þess hefur hann spilað 41 landsleik. Emmi hefur verið frábær fyrirmynd innan vallar sem utan fyrir unga KR-inga.



„Það er fagnaðarefni að fá Emma inn í þjálfarateymi meistaraflokks karla. Þekking hans og reynsla mun verða mikilvæg fyrir leikmannahópinn og við hlökkum til að sjá hann þroskast og dafna í nýju hlutverki,“ segir Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR.


"Knattspyrnudeild KR vill þakka Emma kærlega fyrir framlag hans til fótboltans í KR á sama tíma og við hlökkum til áframhaldandi samstarfs.

Emmi vakti snemma mikla athygli enda framúrskarandi alla tíð. Sá sem þetta ritar man eftir stórleikjum hans á Shellmótinu í Vestmannaeyjum strax í 6. flokki þar sem hann leiddi KR til sigurs. Flokkur hans vann allt sem hægt var að vinna en fjölmargir af félögum hans í yngri flokkum áttu eftir að setja mark sitt á meistaraflokk félagsins. Markar því þessi ákvörðun Emma um að leggja skóna á hilluna ákveðin tímamót og í raun kynslóðaskipti. Við væntum mikils af Emma í nýju hlutverki. Hann býr yfir mikilli reynslu og þekkingu enda lék hann um árabil erlendis og með landsliði Íslands. Það er fagnaðaefni að slík reynsla nýtist félaginu áfram" segir Páll Kristjánsson formaður knattspyrnudeildar KR


"Ég legg skóna sáttur á hilluna eftir farsælan og ógleymanlegan feril. Ég hef fengið að upplifa ólíka menningarheima og geng sáttur frá borði. Ég vil þakka öllum stuðningsmönnum, leikmönnum, þjálfurum, starfsmönnum og síðast en ekki síst fjölskyldu minni fyrir þolinmæðina og stuðninginn. Ég get ekki sagt annað en að ég sé spenntur fyrir komandi verkefnum" segir Emmi að lokum.


Við þökkum Emma fyrir hans framlag til félagsins og óskum honum velfarnaðar í nýju hlutverki innan KR.

Share by: