Vefverslun

    Alltaf er hægt að versla í vefverslun KR en afgreiðslutími í KR heimilinu er alla þriðjudaga milli kl. 16-18

    Lagerstaða
    Reynt er eftir bestu geta að tryggja að vörur sem sjást á vefnum séu til á lager. Sé vara ekki til á lager fær viðskiptavinur tölvupóst eða símtal þess efnis um leið og úrvinnsla á pöntun hefst. Nýr afhendingatími er ákveðinn eða pöntun endurgreidd.

    Myndgæði og myndabrengl
    Reynt er eftir fremsta megni að hafa myndgæði af vörum góð. Ekki er hægt að litbrigði séu 100% eins og varan sést á þínum tölvuskjá.

    Verð
    Öll verð eru uppgefin í íslenskum krónum með vsk. og birt með fyrirvara um innsláttarvillur. Verð í netverslun getur breyst án fyrirvara.

    Greiðsla og öryggi
    Hægt er að greiða með öllum helstu greiðslukortum í vefverslun KR í gegnum örugga greiðslugátt frá Rapyd.

    Afhending/sendingarkostnaður
    Pantanir eru sendar með Íslandspósti innan 1-3 daga eftir að greiðsla pöntunar er staðfest, sé þess óskað. Undantekningar á þessu ferli eru t.d. ef vara er ekki til eða um forpöntun er að ræða.

    • Sótt í verslun: Hægt er að nálgast vörur úr vefverslun í verslun okkar, Frostaskjóli. Tilkynning berst með tölvupósti þegar vara er tilbúin til afhendingar.
    • Heimsent (1.000 kr.) Vara er send með Íslandspósti heim að dyrum. Ef viðkomandi er ekki heima fer sendingin á næsta pósthús. Athugið að KR búðin ber ekki ábyrgð á því ef heimkeyrsla er ekki í boði í þínu bæjarfélagi. Kynntu þér málið á heimasíðu Póstsins

    Skilaréttur
    Almennur skilafrestur á vöru er 30 dagar. Það á við um ónotaða vöru í upprunalegu standi og gegn framvísun kvittunar. Þegar skila þarf vöru er sendingarkostnaður á ábyrgð kaupanda. Útsöluvöru fæst ekki skilað, en hægt er að skipta útsöluvöru fyrir aðra útsöluvöru.

    Galli
    Ef vara reynist gölluð, bætum við sjálfsögðu úr því með annaðhvort nýrri vöru eða endurgreiðslu. Galla á nýrri vöru ber að tilkynna með tölvupósti eða símtali eins fljótt og auðið er.

    Persónuvernd
    KR búðin deilir ekki persónugreinanlegum gögnum til þriðja aðila. Vefurinn okkar notast við Google Analytics og safnar það tól ópersónugreinanlegum gögnum s.s. hvaðan heimsóknin kemur, hversu lengi vefurinn var skoðaður og hvaða efni er mest skoðað. Þessi gögn eru nýtt til að greina heimsóknir á vefinn og gera upplifun notenda af honum enn betri.

    Lög og varnarþing
    Varðandi viðskipti við okkur, sem og önnur atriði í samningsskilmálum þessum gilda íslensk lög. Rísi ágreiningur milli KR búðar og viðskiptavinar skal mál vegna þess rekið fyrir íslenskum dómstólum.

    KR búðin
    Kt: 470391-1119
    Frostaskjól 2, 107 Reykjavík
    510 5300 | krbudin@kr.is