Nimrod Hilliard á Meistaravelli

Sonja Hlín Arnarsdóttir • des. 15, 2023

Stjórn KKD KR hefur samið við Nimrod Hilliard IV um að leika með liðinu. Nim er 30 ára bandarískur bakvörður sem á glæstan feril í Evrópuboltanum að baki. Á sínu fyrsta tímabili í atvinnumennsku varð hann danskur meistari með Horsens auk þess sem hann var valinn verðmætasti leikmaður úrslitaeinvígisins. Þaðan lá leiðin til Þýskalands og svo Svíþjóðar þar sem hann hitti fyrir þjálfara KR liðsins Jakob Örn í liði Boras. Tímabilið 2018-19 var Nimrod valinn verðmætasti leikmaður sænsku úrvalsdeildarinnar. 2019-20 lék hann með öðrum leikmanni úr þjálfarateymi KR, Adama Darboe, er þeir urðu danskir meistarar með Bakken Bears. Eftir tímabil í þýsku Bundesligunni og efstu deild í Ungverjalandi ásamt stoppi á Kýpur hefur Nimrod ákveðið að halda ferlinum áfram í svörtu og hvítu. 


Nim er afar reyndur og fjölhæfur leikmaður sem stjórn KKD ber miklar væntingar til það sem eftir lifir tímabilsins. 


Áfram KR.

Share by: