Melabúðin á búningum meistaraflokka KR í knattspyrnu

Sonja Hlín Arnarsdóttir • apr. 27, 2024

Melabúðin og knattspyrnudeild KR hafa gert með sér samstarfssamning næstu tvö árin, út árið 2025.

Merki Melabúðarinnar mun prýða keppnistreyjur hjá meistaraflokkum knattspyrnudeildar á samningstímanum.

 

"Það er ljúft fyrir hverfisverslunina Melabúðina að standa við bakið á hverfisíþróttafélaginu KR, enda er félagið ekki bara í fremstu röð í knattspyrnunni heldur líka með frábært starf fyrir börn og unglinga í hverfinu. Þetta formlega samstarf undirstrikar stuðning okkar en Melabúðin hefur staðið við bakið á félaginu um áraraðir. Sonur minn heimsækir einmitt íþróttahús KR reglulega með leikskólanum sínum og við gætum ekki verið glaðari" segir Snorri Guðmundsson, annar eigenda Melabúðarinnar

 

"Við hjá KR erum gríðarlega stolt af samstarfi við Melabúðina þar sem Melabúðin er okkar hverfisverslun og þar hittast KR-ingar gjarnan og spjalla um gengi liðsins. Melabúðin hefur stutt ötullega við bakið á knattspyrnudeild félagsins undanfarin ár og því sannur heiður fyrir okkur að vera búin að ná formlegum samningi við Melabúðina" segir Einar Örn Ólafsson, stjórnarmaður knattspyrnudeildar KR.

Share by: