KR-Flugeldar ehf.
– fyrirtæki með djúpar rætur og sterk sambönd
Flugeldasala KR á rætur allt aftur á sjötta áratug síðustu aldar. Það var þó ekki fyrr en knattspyrnudeild KR tók við flugeldasölu á vegum KR í lok áttunda áratugarins að KR-Flugeldar urðu til.
Undir nafni KR-Flugelda margfaldaðist flugeldasala KR á nokkrum árum, svo að árið 1983 var kominn grundvöllur fyrir eigin innflutningi KR-Flugelda, sem staðið hefur allt fram á þennan dag.
Árið 1996 var rekstrarforminu breytt og stofnað hlutafélag um innflutninginn og heildsöluna undir nafninu KR-Flugeldar ehf., sem er í eigu knattspyrnudeildar KR og nokkurra velunnara deildarinnar.
KR-Flugeldar eru umboðsaðilar á Íslandi fyrir tvo af þekktustu flugeldaframleiðendum heims, Vulcan-Shogun í Kína, og WECO í Þýskalandi, sem flestir áhugamenn um flugelda ættu að þekkja. Flugeldarnir frá Vulcan og Shogun voru lengi vel markaðssettir á Íslandi undir vörumerkinu Eðalflugeldar.