17. mars 2010

Mfl. karla: ÍR - KR á fimmtudag
KR leikur við ÍR í Lengjubikar karla á fimmtudag, 18. mars. Leikurinn verður í Egilshöll og hefst kl. 19:10.

Bæði lið hafa leikið þrjá leiki í keppninni. ÍR vann Gróttu 2-1 en tapaði 0-6 fyrir ÍBV og 4-5 fyrir Keflavík. KR hefur unnið ÍBV 4-1, HK 5-1 og Keflavík 3-2.

KR og ÍR hafa einu sinni áður mæst í Lengjubikarnum (þá Deildabikarnum). KR vann 3-0 á gervigrasvellinum í Laugardal árið 2001. Moussa Mustapha Dagnogo skoraði í sínum fyrsta leik með KR en Þorsteinn E. Jónsson og Sigurvin Ólafsson skoruðu hin mörkin.

KR vann ÍR 3-1 á Reykjavíkurmótinu 14. janúar sl. Skúli Jón Friðgeirsson, Gunnar Örn Jónsson og Davíð Birgisson skoruðu fyrir KR en Davíð Már Stefánsson skoraði mark ÍR.
Til baka

Leita

KR vefurinn
Google

Þessi vefur er knúinn af e.c.Web

Knattspyrnufélag Reykjavíkur - Frostaskjóli 2, 107 Reykjavík. Sími 510 5300
Höfundarréttur KR ® 2003 - 2010 © Allur réttur áskilinn. Ábendingum og spurningum er beint til kr@kr.is