11. febrúar 2010

KR leikur við Þrótt á Reykjavíkurmóti mfl. kvenna á föstudag, 12. febrúar. Leikurinn verður í Egilshöll og hefst kl. 19.
Félögin hafa tvisvar áður mæst á Reykjavíkurmóti og vann KR í bæði skiptin með nokkrum mun. Á þessu móti hafa bæði félög unnið HK/Víking en tapað fyrir Fylki og Val.
Með Þrótti leikur Hrefna Jóhannesdóttir, næst markahæsti og fjórði leikjahæsti KR-ingurinn. Hún hefur áður mætti KR með ÍBV, Breiðabliki og Stjörnunni og verður fróðlegt að sjá hvernig henni gengur með Þrótti gegn sínu gamla félagi.