KR er 111 ára í dag. Félagið var stofnað á þessum degi árið 1899.
Lengi vel var talið að KR hafi verið stofnað í mars 1899 en stofndagurinn er nú miðaður við það sem fram kom í grein eftir Kristján L. Gestsson sem birt var í Lesbók Morgunblaðsins 16. febrúar 1924. Hún hefst á þessum orðum: “Knattspyrnufélag Reykjavíkur var stofnað þennan dag árið 1899 og er það því 25 ára að aldri.”
Sagan segir, og hún er rifjuð upp í bókinni Fyrsta öldin - Saga KR, að félagið hafi verið stofnað formlega í verslun Guðmundar Olsen í Aðalstræti. Þar kom saman hópur drengja sem skutu saman fé til boltakaupa.