KR leikur við Val á Reykjavíkurmóti karla á laugardag, 6. febrúar. Leikurinn verður í Egilshöll og hefst kl.17.
KR hefur unnið ÍR (3-1) og Þrótt (6-1) en gerði jafntefli við Víking (3-3). Valur gerði jafntefli við Þrótt (4-4) en tapaði 1-2 fyrir Víkingi.
Leikurinn verður 91. viðureign félaganna á Reykjavíkurmóti. KR sigraði 5-1 í fyrsta leiknum árið 1915 og 4-0 árið 2008, síðast þegar félögin mættust.