01. febrúar 2010

Knattspyrnuæfingar fyrir fötluð börn og ungmenni
Knattspyrnufélagið KR býður aftur upp á knattspyrnuæfingar fyrir fötluð börn og ungmenni. Markmiðið er að gefa fötluðum börnum og unglingum tækifæri að vera virkir þátttakendur hjá almennu knattspyrnufélagi.
 
Íþróttasamband fatlaðra er umsjónaraðili starfsemi Special Olympics á Íslandi. Evrópusamtök Special Olympics og UEFA hafa byggt upp samstarf á sviði knattspyrnu fyrir fatlaða og en óskað var eftir því að aðildarlönd samtakanna starfi með knattspyrnusamböndum í hverju landi að þessu verkefni.

Miðvikudaginn 3. febrúar hefjast knattspyrnuæfingarnar fyrir fatlaða og þroskahefta.  Æft verður á miðvikudögum
kl. 18.00 -18.50 og eru æfingarnar fyrir 16 ára og yngri.

Jafnframt verður reynt að stuðla að því að þeir sem þess óska geti verið á æfingum með sínum jafnöldrum. Meginmarkmið er að skapa valkost sem gerir fötluðum og þroskaheftum börnum og unglingum kleift að vera virkir þátttakendur á æfingum hjá almennu knattspyrnufélagi og leika undir merkjum KR.

Nánari upplýsingar gefa Rúnar Kristinsson í síma: 510-5306, netfang 
rkr@kr.is og
Stefán Arnarson í síma: 510-5310, netfang
stefan@kr.is.
 
Til baka

Leita

KR vefurinn
Google

Þessi vefur er knúinn af e.c.Web

Knattspyrnufélag Reykjavíkur - Frostaskjóli 2, 107 Reykjavík. Sími 510 5300
Höfundarréttur KR ® 2003 - 2010 © Allur réttur áskilinn. Ábendingum og spurningum er beint til kr@kr.is