Þeir gerast vart stærri deildarleikirnir en KR og Njarðvík og eins og svo oft áður er margt í húfi. Liðin eigast við í DHL-höllinni í kvöld kl 19:15 og er vissara að mæta tímanlega í grillborgara og tryggja sér sæti því búist er við fjölmenni á þennan risaslag.
Mynd: Darri Hilmarsson skoraði 17 stig í stórsigrinum á Njarðvík í fyrra.
Liðin hafa barist hatrammlega í allan vetur um toppsætið í Iceland Expressdeildinni. Njarðvíkingar styrktu sig gríðarlega fyrir tímabilið, innan sem utan vallar og bættu síðan við reynsluboltanum Nick Bradford nú eftir áramót. Því miður fyrir græna herinn hefur innkoma hans ekki skilað sér sem skyldi er það er deginum ljósara að þeir vilja snúa við blaðinu í DHL-höllinni í kvöld. Það vilja strákarnir okkar líka gera, tap í síðasta leik þar sem liðið sýndi sinn slakasta leik í vetur. Pavel verður væntanlega kominn enn betur inn í leik liðsins og klár í slaginn. Hinir strákarnir muna væntanlega eftir að mótherjar kvöldsins slógu þá úr bikarnum og unnu þá í deildinni á örfáum dögum í haust þar sem KR hafði yfirhöndina lengst af en lét hana af sér í lokin.
Þetta eru KR og Njarðvík, það verður barist allt til síðustu sekúndu. Ekki láta þig vanta í DHL-höllina í kvöld. Burger frá 18:00, leikurinn hefst 19:15 stundvíslega.
Semaj átti flotta troðslur gegn Njarðvík í Subwaybikarnum í haust, hér er önnur þeirra.