Stefna KR

Á aðalfundi KR 9. maí 2007 var ný stefna KR samþykkt einróma.  Hún er eftirfarandi:


Hlutverk KR
Knattspyrnufélag Reykjavíkur, KR, er samofið íslensku samfélagi, elsta íslenska knattspyrnufélagið og gegnir lykilhlutverki í íslenskri íþróttahreyfingu.
KR starfrækir metnaðarfullt, faglegt og fjölbreytt íþróttastarf í knattspyrnu sem og öðrum greinum með heilbrigði og vellíðan að leiðarljósi og því markmiði að ná úrvals árangri í afreks- og uppeldisstarfi.
"Einu sinni KR-ingur allt KR-ingur" er lífssýn sem félagið ræktar meðvitað og skapar þannig mikil lífsgæði og eftirsóknarvert samfélag þar sem ríkir gleði og stolt.


Gildi KR
Í allri framgöngu, starfi og samskiptum sín á milli, við félaga og mótherja, í keppni, utan vallar og innan hafa KR-ingar eftirfarandi gildi að leiðarljósi:

Metnaður
KR-ingar eru stoltir og hafa metnað til að vera í fararbroddi framsækinna íþróttafélaga og ná framúrskarandi árangri í öllu starfi félagsins

Fagmennska
KR-ingar nota alltaf þá bestu menntun, hæfni og þekkingu sem til er á hverjum tíma í þjálfun, stjórnun og rekstri.

Virðing
KR-ingar vinna að jafnrétti kynjanna og koma ávallt fram af virðingu hvar sem þeir eru

Gleði
Gleði, ánægja, skemmtilegur félagsskapur og jákvæð hvatning eru lykilatriði í starfi KR

Það er gaman að vera KR-ingur


Framtíðarsýn - KR árið 2020
KR hefur á að skipa fjölda hæfra íþróttamanna, leiðtoga, stjórnenda og sjálfboðaliða og heldur miklum og góðum samskiptum við þúsundir skráðra félaga.
Uppeldisstarf félagsins dregur að sér nær öll börn í grunnskólum Vesturbæjar með sýnilegum árangri á vellíðan þeirra og höfðar auk þess sérstaklega til annarra barna og unglinga með mikinn metnað.
Afreksfólk KR er í fremstu röð, oftar meistarar en keppinautarnir og allt í baráttu um titla.
Aðalstöðvar KR við Frostaskjól eru hjarta Vesturbæjarins og miðstöð fjölbreyttrar starfsemi KR-samfélagsins.  Keppnisumgjörð KR er sú eftirsóknaverðasta í landinu og félagið er með framúrskarandi æfingaaðstöðu víða á þjónustusvæði sínu.


Meira um markmið og leiðir, skipulag og framkvæmdaáætlun í stefnumótunarplagginu hér.

Aðalstjórn KR og stýrihópur stefnumótunar þakkar öllum þeim fjölmörgu KR-ingum sem komu með einum eða öðrum hætti að stefnumótunarvinnunni.  Nú hefst næsta skref þ.e. að innleiða og framkvæma stefnuna.



Leita

KR vefurinn
Google

Íþróttanámskrá KR
Í formála segir að markmið með gerð þessarar íþróttanámskrár sé að móta framtíðarstefnu í uppbyggingu íþrótta og tómstunda hjá Knattspyrnufélagi Reykjavíkur. Þessi íþróttanámskrá nær meðal annars yfir almenn stjórnunarstörf hjá félaginu, fjallar um stefnu og markmið þess, helstu atriði sem snúa að þjálfun barna og unglinga og almenna uppbyggingu og stjórnun íþrótta.

Námskránni er skipt í fjóra hluta fyrir utan innganginn. Fremst í hverjum tölulið er krækja sem opnar viðkomandi hluta sem Acrobat skjal.

1. Fyrsti hluti nær yfir félagið, lög og starfsemi, stefnu, markmið, skipurit og aðstöðu.  (77 blaðsíður)

2. Annar hluti fjallar um íþróttaskóla og þjálfun í íþróttafélögum, svo sem skipulag þjálfunar og helstu hlutverk þjálfar.

3. Þriðji hlutinn fjallar um þroska barna og unglinga og ýmis þjálffræðileg og uppeldisleg atriði sem hverjum  þeim sem starfar með börnum og unglingum er nauðsynlegt að vita.

4. Fjórði og síðasti hluti námskrárinnar fjallar um ýmis atriði sem tengjast íþróttafélaginu. Þetta eru atriði eins og stefna íþrótta félagsins í vímuvörnum, íþróttareglur barna, foreldrasamstarf, helstu stefnur Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og mat á starfi íþróttafélaga. (43 blaðsíður)



 
Þessi vefur er knúinn af e.c.Web

Knattspyrnufélag Reykjavíkur - Frostaskjóli 2, 107 Reykjavík. Sími 510 5300
Höfundarréttur KR ® 2003 - 2010 © Allur réttur áskilinn. Ábendingum og spurningum er beint til kr@kr.is