KR svæðið
Íþróttamiðstöð KR stendur við Frostaskjól og Kaplaskjólsveg í Vesturbænum. Landsvæði það sem hún stendur á var keypt árið 1939, á fertugsafmæli félagsins en þreifingar höfðu verið í gangi í allmörg ár um kaup á landi undir starfsemi Knattspyrnufélags Reykjavíkur:

Staðnæmst var við land að Kaplaskjólsmýri nr. VIII, um þriggja hektara land. Um þetta segir í samantekt um mannvirki félagsins sem Gísli Halldórsson og Leifur Gíslason hafa skrifað:

„Landið var blautt, enda voru þarna gamlar mógrafir. En það var slétt, hallalaust og að hálfu leyti grasi gróið. Hér var um erfðafestuland að ræða og fékkst fyrir sæmilegt verð.“

Á svæðinu sem afmarkast af Meistaravöllum, Kaplaskjólsvegi, Frostaskjóli og Fjörugranda, hefur mestöll starfsemi KR farið fram frá upphafi. Önnur íþróttaaðstaða sem hefur tilheyrt félaginu er skíðasvæðið í Skálafelli, sem félagið byggði upp af miklum myndarskap eins og kunnugt er. Sundæfingar hafa að verulegu leyti farið fram í Sundlaug Vesturbæjar, en einnig í Sundhöllinni og Sundlaug Seltjarnarness. (Ef smellt er á orðinu "svæðinu" fremst í þessari efnisgrein má ná í stóran uppdrátt af KR-svæðinu sem hægt er að skoða eða prenta út á A3 pappír)


Leita

KR vefurinn
Google

 

Þessi vefur er knúinn af e.c.Web

Knattspyrnufélag Reykjavíkur - Frostaskjóli 2, 107 Reykjavík. Sími 510 5300
Höfundarréttur KR ® 2003 - 2010 © Allur réttur áskilinn. Ábendingum og spurningum er beint til kr@kr.is