Íþróttaskóli KR

Íþróttaskóli KR fyrir 3 til 6 ára börn hefst laugardaginn 11. september 2010 og lýkur 11. desember.  Kennt er í íþróttahúsi KR, B-sal.

Aldursskipting: 

3 - 4 ára eru frá kl: 10:00-11:00
5 - 6 ára eru frá kl: 11:00-12:00

Hægt er að skrá sig á sérstöku eyðublaði (smellið hér) og senda það á netfangið skrifstofa@kr.is. Nánari upplýsingar og aðstoð veitir skrifstofa KR í síma 510-5310.

Námskeiðið er í 14 skipti og kostar kr. 9.500.  Upplýsingar um greiðslufyrirkomulag er að finna á skráningareyðublaði.  Þægilegast er að búið sé að mililfæra áður en námskeiðið hefst en starfsmaður frá KR mun einnig mæta í fyrstu tímana og taka við greiðslum (debetkort og kreditkort).

Best er að vera með frá byrjun en einnig er hægt að bætast í hópinn eftir að námskeiðið byrjar.  Þá er greitt hlutfallslega miðað við fjölda skipta sem eftir er.

Systkinaafsláttur er í boði.  Hann virkar þannig að elsta systkin greiðir fullt gjald, 25% afsláttur er fyrir systkin nr. 2 og 50% afsláttur fyrir systkin nr. 3.

Hjá íþróttaskóla KR fer fram áhugaverð dagskrá þar sem haft er að leiðarljósi að efla skyn og hreyfiþroska barnanna ásamt því að kenna þeim að vinna með öðrum, umgangast aðra og taka tillit hvert til annars.

Umsjónarmaður Íþróttaskóla KR er Baldur Þorsteinsson, íþróttakennari.



Smelltu á myndina til að komast á heima- og myndasíðu Íþróttaskóla KR!

 

Sumarstarf 2011 
Undanfarin sumur hafa deildir KR haldið námskeið yfir sumartímann.  Námskeiðin sem hafa verið í boði eru knattspyrnuskóli, körfuboltaskóli og sundnámskeið.  Nánari upplýsingar um námskeið sumarsins 2011 birtast þegar nær dregur.


  

 

Leita

KR vefurinn
Google

  

 

Þessi vefur er knúinn af e.c.Web

Höfundarréttur KR ® 2003 - 2010 © Allur réttur áskilinn. Ábendingum og spurningum er beint til kr@kr.is