Frekari upplýsingar um styrki til íþróttaiðkunar barna má finna á eftirfarandi heimasíðum:

Frístundakort Reykjavíkurborgar - Heimasíða ÍTR

Tómstundastyrkir Seltjarnarnesbæjar



Almennar upplýsingar um
Frístundakortið
  • Meginmarkmið Frístundakortsins er að öll börn og unglingar á aldrinum 6-18 ára (miðað við fæðingarár) með lögheimili í Reykjavík geti tekið þátt í uppbyggilegu frístundastarfi óháð efnahag eða félagslegum aðstæðum.
  • Með Frístundakortinu má greiða að hluta eða að öllu leyti fyrir íþrótta-, lista- og æskulýðsstarfsemi á vegum félaga og samtaka sem starfa í Reykjavík og nágrannasveitarfélögunum.
  • Hverju ári verður skipt í þrjú tímabil, haustönn, vorönn og sumarönn.  Heimilt verður að nýta styrkina til greiðslu allt að þriggja greina á hverju tímabili.
  • Ekki verður um beingreiðslur til foreldra að ræða heldur fá foreldrar rétt til að ráðstafa tilgreindri upphæð í nafni barns síns til greiðslu á hluta þátttöku- og æfingagjalda.
  • Upphæð ráðstöfunarstyrks til barna á aldrinum 6-18 ára með lögheimili í Reykjavík er:

    1. janúar - 31. desember 2010 kr. 25.000

    Forsenda þess að hægt sé að ráðstafa styrknum er að búið sé að skrá barn í tómstund hjá félagi sem er aðili að Frístundakortinu og að félagið sé búið að skrá barnið í Frístundakortskerfið á Rafrænu Reykjavík.
  • Athugið að ekki er hægt að fá endurgreidda þá upphæð sem búið er að ráðstafa til félags.
  • Hafir þú einhverjar spurningar eða athugasemdir, vinsamlegast sendu þær á fristundakort@itr.is eða hafðu samband við símaver Reykjavíkurborgar í síma 411-1111.  Einnig er hægt að fá aðstoð hjá þjónustumiðstöðvum borgarinnar hafi foreldrar ekki aðgang að tölvu.


KR aðili að Frístundakortinu

KR - Knattspyrnufélag Reykjavíkur er að sjálfsögðu aðili að Frístundakortinu.  Frístundakortið er hægt að nota til að greiða æfingagjöld hjá öllum deildum KR og eru þær þessar:

Upplýsingar um æfingatíma og æfingagjöld má finna á heimasíðum deildanna.  Hægt er að fara inná heimasíður deildanna með því að smella á nöfn þeirra hér að ofan.

Hafir þú einhverjar spurningar eða athugasemdir, vinsamlegast sendu þær á kr@kr.is eða hafðu samband við skrifstofu KR í símum 510-5310 eða 510-5312.



Hvernig get ég ráðstafað styrk
fyrir barnið mitt?
  • Farðu inná vef Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is
    Farðu í UMSÓKNIR, Rafræn Reykjavík og svo í INNSKRÁ.
    Ef þú ert að fara inn í fyrsta skipti skaltu fara í NÝSKRÁ.
  • Þegar þú hefur skráð þig inn í Rafræna Reykjavík skaltu velja flipann FRÍSTUNDAKORT.
  • Veldu RÁÐSTAFA STYRK.
  • Veldu nafn barns af fellilista.
  • Þá birtist námskeið sem barnið er skráð á og heildarupphæð námskeiðs.
  • Skrifaðu upphæð ráðstöfunarstyrks í kassa fyrir aftan námskeið og staðfestu ráðstöfunina.
  • Ráðstöfunarupphæð birtist hjá félagi, sem lækkar reikning iðkandans sem nemur ráðstöfunarupphæð.
  • Ef upphæð námskeiðs er hærri en þú ráðstafar, þarft þú að greiða mismuninn til félagsins.
  • Ekki er hægt að ráðstafa hærri upphæð til félags en námskeiðið kostar.


 
Leita

KR vefurinn
Google

Þessi vefur er knúinn af e.c.Web

Höfundarréttur KR ® 2003 - 2010 © Allur réttur áskilinn. Ábendingum og spurningum er beint til kr@kr.is