Póstlisti Knattspyrnudeildar
Netfang: *
Nafn: *
Tek við HTML pósti *
Fréttir
14. mars 2010 | 15:06
| Knattspyrnudeild

Vorleikur KR-getrauna: Staðan eftir 9. umferð

Staðan eftir 9. og næst síðustu umferð í riðlakeppni Vorleiks KR-getrauna liggur fyrir. Fimm hópar höfðu 11 leiki rétta: Bítlarnir og Kjarni í A-riðli, Hjálmholt og Danica í B-riðli og SBOGGP í G-riðli.

Hjálmholt (B-riðli) er efst sem fyrr, nú með 95 stig. Honda/Peugeot (B-riðli) hefur 92 stig, Danica (B-riðli) 91 stig og R+R (B-riðli) og UBK (I-riðli) hafa 90 stig.

Riðlakeppninni lýkur á laugardag og viku síðar hefjast lokakeppnin og Framrúðubikarinn. Það er því ástæða til að rifja upp reglurnar um það hverjir fara í lokakeppnina og hverjir fara í Framrúðubikarinn:
* Efstu tveir hópar hvers riðils fara í lokakeppnina.
* Allir hópar sem hafa jafn mörg stig, eða fleiri stig, og stigalægsti hópurinn í 2. sæti einhvers riðils fara í lokakeppnina.
* Aðrir hópar keppa í Framrúðubikarnum.
* Efsti hópur hvers riðils byrjar lokakeppnina með tvö bónusstig.
* Verði tveir eða fleiri hópar efstir og jafnir fá báðir/allir hóparnir tvö bónusstig.

Smellið hér, eða á merkið til hægri, til að sjá stöðuna í riðlakeppninni.

Svo minnum við á getraunakaffið á laugardag milli kl. 10 og 14.

Til baka
Prentvæn útgáfa

Leita

Vefur Knattspyrnudeildar
Google

Þessi vefur er knúinn af e.c.Web

Höfundarréttur KR ® 2003 - 2010 © Allur réttur áskilinn. Ábendingum og spurningum er beint til knattspyrna@kr.is