Póstlisti Knattspyrnudeildar
Netfang: *
Nafn: *
Tek við HTML pósti *
Fréttir
06. mars 2010 | 21:27
| Knattspyrnudeild

Mfl. kv: Tap í Lengjubikarnum

KR tapaði 1-3 fyrir Þór/KA í fyrsta leiknum í Lengjubikarkeppni ársins. Dagmar Mýrdal Gunnarsdóttir skoraði mark KR.

 

Dagmar skoraði fyrsta mark leiksins á 24. mínútu eftir sendingu af vinstri kanti. Boltinn barst fyrir markið og skoraði Dagmar með skoti upp þaknetið af stuttu færi. Þarna sýndi Dagmar ákveðni sem hún mætti gjarnan sýna oftar í baráttunni um boltann.

 

Þór/KA svaraði þessu með tveimur mörkum á næstu átta mínútum og leiddi 2-1 eftir jafnan fyrri hálfleik.

 

Seinni hálfleikur var í sjálfu sér jöfn barátta en Þór/KA fékk mun betri færi. KR átti sinn besta möguleika til að jafna fljótlega eftir hlé. Kristín komst inn í vítateiginn vinstra megin og sendi fyrir markið en KR-ingar voru ekki mættir þegar boltinn skoppaði þvert fyrir markteiginn.

 

Heilt yfir var frammistaða KR-inga ágæt og skref fram á við frá leikjunum á Reykjavíkurmótinu. Það er ýmislegt sem þarf að laga fram að Pepsi-deildinni en miðað við þennan leik og fyrri leiki liðsins er það á réttri leið.

 

 

Þór/KA - KR: 0-1 Dagmar Mýrdal Gunnarsdóttir (24.), 1-1 (29.), 2-1 (32.), 3-1 (89.)

 

Lið KR: Hrafnhildur Agnarsdóttir - Rebekka Sverrisdóttir, Lilja Dögg Valþórsdóttir (f.), Ellen Bjarnadóttir, Elísabet Ester Sævarsdóttir (Svala Rakel Hjaltadóttir 87.) - Dagmar Mýrdal Gunnarsdóttir (Guðrún Ólöf Olsen 69.), Margrét Þórólfsdóttir (Freyja Viðarsdóttir 76.), Mist Edvardsdóttir, Lára Hafliðadóttir (Svava Björnsdóttir 87.), Sonja Björk Jóhannsdóttir (Kristín Sverrisdóttir 46.) - Katrín Ásbjörnsdóttir.

Varamenn: Selja Ósk Snorradóttir, Sonja Ásgeirsdóttir.

Gul spjöld: Ellen Bjarnadóttir, Sonja Björk Jóhannsdóttir.

 

* Þriðji leikur KR og Þórs/KA í Lengjubikarkeppninni. KR sigraði í fyrsta leiknum en Þór/KA í hinum tveimur. Markatalan er samt 10-4 KR í hag.

* Dagmar Mýrdal Gunnarsdóttir skoraði sitt þriðja mark í 54 leikjum með mfl. KR.

* Harpa Ásgeirsdóttir og Ólöf Gerður Ísberg léku ekki vegna meiðsla.

Til baka
Prentvæn útgáfa

Leita

Vefur Knattspyrnudeildar
Google

Þessi vefur er knúinn af e.c.Web

Höfundarréttur KR ® 2003 - 2010 © Allur réttur áskilinn. Ábendingum og spurningum er beint til knattspyrna@kr.is