Póstlisti Knattspyrnudeildar
Netfang: *
Nafn: *
Tek við HTML pósti *
Fréttir
05. mars 2010 | 17:34
| Knattspyrnudeild

Fimm KR-ingar í A-landsliðshópnum

Fimm KR-ingar eru í A-landsliðshópnum sem mætir Færeyingum í Kórnum 21. mars og Mexíkóum í Bandaríkjunum þremur dögum síðar. Skúli Jón Friðgeirsson er einn fjögurra nýliðanna í hópnum.

 

Auk Skúla Jóns eru Bjarni Guðjónsson, Baldur Sigurðsson, Óskar Örn Hauksson og Björgólfur Takefusa í hópnum. Bjarni lék sinn 21. A-landsleik í jafnteflinu við Kýpur sl. miðvikudag. Þetta var fyrsti A-landsleikur hans sem KR-ingur og varð hann þar með 70. A-landsliðsmaður félagsins.

 

Óskar og Baldur léku með A-landsliðinu í fyrsta sinn í fyrra en Björgólfur lék fyrst með A-landsliðinu (sem liðsmaður Þróttar) árið 2003 þegar Ísland mætti Mexíkó í Bandaríkjunum. Björgólfur lék síðan tvo leiki í fyrra.

Til baka
Prentvæn útgáfa

Leita

Vefur Knattspyrnudeildar
Google

Þessi vefur er knúinn af e.c.Web

Höfundarréttur KR ® 2003 - 2010 © Allur réttur áskilinn. Ábendingum og spurningum er beint til knattspyrna@kr.is