Póstlisti Knattspyrnudeildar
Netfang: *
Nafn: *
Tek við HTML pósti *
Fréttir
05. mars 2010 | 08:00
| Knattspyrnudeild

Mfl. karla: Úrslitaleikur KR og Víkings

KR og Víkingur leika til úrslita á Reykjavíkurmóti mfl. karla sunnudaginn 7. mars. Leikurinn verður í Egilshöll og hefst kl. 20.

 

KR og Víkingur voru í A-riðli keppninnar og gerðu 3-3 jafntefli í bráðfjörugum leik. Í undanúrslitum vann KR Fram 4-2 en Víkingur vann Fylki í vítakeppni.

 

Leikurinn verður 83. viðureign KR og Víkings á Reykjavíkurmóti. KR hefur sigrað í 49 leikjum, Víkingur í 17 en 16 leikjum hefur lokið með jafntefli. Markatalan er 202-89 KR í hag.

 

Frá því að núverandi fyrirkomulag (tveir riðlar og úrslitaleikur) var tekið upp árið 1985 hefur KR leikið 14 sinnum til úrslita. KR hefur sigrað í 11 úrslitaleikjum en tapað þremur. Víkingur hefur tvisvar leikið til úrslita en tapaði árin 2006 og 2007.

 

KR hefur ekki áður leikið úrslitaleik gegn Víkingi. Félögin léku hins vegar aukaleik um Reykjavíkurmeistaratitilinn árið 1928 og hafði KR betur, 2-1.

Aðgangur að leiknum er ókeypis.

Til baka
Prentvæn útgáfa

Leita

Vefur Knattspyrnudeildar
Google

Þessi vefur er knúinn af e.c.Web

Höfundarréttur KR ® 2003 - 2010 © Allur réttur áskilinn. Ábendingum og spurningum er beint til knattspyrna@kr.is