KR gerði 2-2 jafntefli við Selfoss í æfingaleik í Egilshöll í kvöld. Ólöf Gerður Ísberg og Sonja Björk Jóhannsdóttir skoruðu fyrir KR.
KR náði tvisvar forystunni. Ólöf gerði fyrra markið með viðstöðulausu skoti úr miðjum vítateig eftir sendingu frá Dagmar af hægri kanti. Sonja Björk gerði seinna markið eftir stungusendingu Margrétar. Sonja sendi boltann yfir markvörðinn af um 20 metra færi.
Bæði lið fengu færi til að bæta við mörkum. Hrafnhildur varði mjög vel mínútu eftir fyrra mark KR. Skot úr vítateignum hægra megin stefndi í hornið fjær en Hrafnhildur náði að slá boltann aftur fyrir endamörk. Berglind varði ein gegn sóknarmanni á 52. mínútu í stöðunni 1-1.
Næstum allur meistaraflokkshópurinn spilaði. Það vantaði Lilju, Katrínu, Freyju, Særúnu og Selju, og þær sem eru erlendis, Berglind og Rut léku með KR en þær eru skráðar í önnur félög.
Jafntefli var líklega sanngjörn niðurstaða. Selfyssingar léku vel og lofa mjög góðu fyrir sumarið.
KR - Selfoss: 1-0 Ólöf (21.), 1-1 (42.), 2-1 Sonja Björk (55.), 2-2 (61.)
Lið KR: Hrafnhildur (Berglind) - Rebekka (Sonja Á.), Mist (Guðrún O.), Ellen (Guðrún J.), Ester (Rut) - Kristín (Dagmar), Lára (Hulda), Harpa (Svala), Margrét, Ólöf - Sonja Björk (Svava).
* Að ofan er byrjunarlið KR og fyrstu skiptingar. Tuttugu leikmenn spiluðu, enginn lék þó allan leikinn.
* Leikurinn var 2x40 mínútur.
