08. febrúar 2010 | 23:45

KR vann gríðarlega mikilvægan sigur á Njarðvík í DHL-höllinni í kvöld, lokatölur 89-77 fyrir Íslandsmeistarana. Leikurinn var jafn framan af en KR-ingar tóku völdin í fjórða leikhluta. Brynjar Þór Björnsson var sjóðandi í kvöld og skoraði 33 stig. Tommy Johnson bætti við 22 stigum.
Myndir: Daníel Rúnarsson tók þessar fínu myndir sem prýða þessa frétt.
Leikurinn var vel sóttur og var bekkurinn þéttsetinn í DHL-höllinni, þrátt fyrir að sýnt væri beint frá honum á Stöð 2 Sport og KRTV. Pavel Ermolinski kom inn í byrjunarliðið á kostnað Semaj Inge. Gestirnir byrjuðu betur og var Nick Bradford þar í aðalhlutverki. Líkt og hann er þekktur fyrir var hann samkjaftandi allan tímann við samherja, mótherja, dómara, ritaraborðið, áhorfendur, húsverðina og afgreiðslufólkið í sjoppunni. Græddi ekki mikið á því en það vakti kátínu og skemmtun er það sem fólk vill sjá. Eftir að gestirnir leiddu 11-6 í upphafi komu 9 stig frá KR í röð, þar af 7 frá Brynjari sem setti strax tóninn. KR-ingar tóku frumkvæðið og leiddu 27-18 eftir fyrsta leikhluta. Njarðvíkingar skiptu yfir í svæðisvörn í öðrum leikhluta sem virtist rugla KR-inga í ríminu. Magnú Þór Gunnarsson setti tvö þrista ofan af Seltjarnarnesi og gestirnir leiddu í hálfleik 44-49.
Þriðji leikhluti byrjaði ekki vel fyrir KR en gestirnir skoruðu 6 fyrst stig hans og komust í 11 stiga forskot, 44-55. Þá kom Brynjar KR-ingum aftur inn í leikinn með flottum körfum, þar af 10 stig á skömmum tíma. Hann átti meðal annars fjögurra stiga sókn (þriggjastiga auk vítis) og það í annað sinn í leiknum. Jón Orri jafnaði metin 64-64 með magnaðri troðslu og eftir þrjá leikhluta var staðan jöfn 70-70.
Fjórði leikhluti var eign KR. Gestirnir skoruðu 3 stig fyrstu 8 mínútur leikhlutans á meðan KR-ingar bættu við körfum hægt og rólega. Þeir komust í 11 stiga forskot og héldu forustunni út til leiksloka og unnu að lokum sannfærandi 12 stiga sigur, sem kemur Íslandsmeisturunum ofar Njarðvíkingum í innbyrðisviðureignum ef þær munu skipta máli í lok deildarkeppninnar.
Brynjar Þór sýndi líklega einn sinn besta leik í meistaraflokki. Nýtingin var frábær, 3/3 í 2ja stiga skotum, 7/11 í 3ja stiga skotum og 6/6 í vítum. Alltaf þegar KR þurfti á að halda kom karfa frá Brynjari og þrátt fyrir að vera með yfirfrakka á sér nær allan leikinn stóð hann fyrir sínu. Tommy Johnson átti fínan leik í kvöld ef frá er talin skotnýtingin. Hann endaði með 22 stig, 6 fráköst og 4 stolna bolta og sýndi frábæra baráttu í leiknum. Pavel Ermolinski er enn að komast inn í leik liðsins en stjórnaði því af festu og ákveðni og mataði liðsfélaga sína af frábærum sendingum. Hann var nærri þrefaldri tvennu með 10 stig, 9 fráköst og 8 stoðsendingar. Semaj Inge brást hárrétt við því að vera settur á bekkinn, hann kom ákveðinn inn og þrátt fyrir að skora ekki mikið var framlag hans dýrmætt í vörn og fráköstum. Fannar Ólafsson átti fínan leik með 10 stig og 12 fráköst og hafði nokkuð góð tök á miðherjum gestanna.
Dómarar leiksins settu línu í upphafi sem hvergi var kvikað frá. Fjöldi ásetningsvilla í leiknum er mögulega met á Íslandi og eins voru tæknivillurnar fjölmargar, og stundum fyrir litla sakir eins og Fannar Ólafsson fékk að kenna á. En samt var leikurinn alls ekki grófur, bara vel tekið á því og góður forsmekkur fyrir framhaldið en baráttan í algleymingi í þessari jöfnu deild. KR tryggir stöðu sína á toppnum, er nú komið 4 stigum fyrir ofan Njarðvík og hin liðin sem elta okkur eins og skugginn en þau eiga reyndar leik til góða.