Póstlisti Körfunnar
Netfang: *
Nafn: *
Tek við HTML pósti
Fréttir
18. mars 2010 | 23:17
| Körfuknattleiksdeild

KR-ingar deildarmeistarar!
KR-ingar tryggðu sér deildarmeistaratitilinn eftir sigur á Snæfelli í Stykkishólmi 86-90. KR mætir ÍR í 8-liða úrslitum en Breiðhyltingar gerðu sér lítið fyrir og sigruðu Grindvíkinga í lokaumferðinni. Pavel Ermolinski átti stórleik fyrir KR og skoraði 23 stig.

Mynd: Fannar Ólafsson tekur við deildarmeistaratitlinum. Smellið á myndina til að fá stærri útgáfu. Myndina tók Þorsteinn Eyþórsson fyrir karfan.is

Leikurinn í kvöld var hnífjafn frá upphafi til enda. Eftir að heimamenn komus tí 5-0 svaraði KR með 7-1 áhlaupi. Darri Hilmarsson kom inn á fyrir Tommy sem lenti í villuvandræðum og skoraði flautuþrist fyrir KR í lok leikhlutans sem minnkaði muninn í 21-17. KR-ingar byrjuðu annan leikhluta sterkt og komust yfir í 23-24 en á þessum tíma var KR að spila góða pressuvörn. Jafnt var á öllum tölum til loka fyrir hálfleiks en þá fengu KR-ingar tæknivillu og heimamenn settu niður þrjú víti sem tryggði þeim 46-43 forskot í hálfleik.

Eftir að heimamenn byrjuðu betur í þriðja leikhluta og komust í 54-47 komu KR-ingar enn aftur og 57-57. Jafnt var fyrir lokaleikhlutann 67-67. KR-ingar náðu fjögurra stiga forskoti 68-72 en enn á náði varð leikurinn jafn 76-76. Í lokaleikhlutanum var það Pavel Ermonlinski sem tók yfir og skoraði 12 stig á síðustu 7 mínútum leiksins. Hann var ískaldur á vítalínunni í lokin og og tryggði KR sigur 86-90. KR er því deildarmeistari Iceland Express deildar karla árið 2010.

Stigaskor KR: Pavel Ermolinskij 23, Brynjar Þór Björnsson 19, Morgan Lewis 13, Finnur Atli Magnússon 10, Darri Hilmarsson 9, Tommy Johnsson 7, Jón Orri Kristjánsson 5 og Fannar Ólafsson 4.


Til baka
Prentvæn útgáfa

Leita

Vefur Körfunnar
Google

Á næstunni

Reykjarvíkurmót 9. flokkur drengja
11.-12. september - Laugardalshöll

Reykjarvíkurmót 9. flokkur stúlkna
12. september - DHL Höllin

Reykjarvíkurmót 11. flokkur drengja
18.-19. september - Grafarvogi

Reykjarvíkurmót Stúlknaflokki
18.-19. september - Vodafone Höllin

Powerade kvenna DHL-Höllin
Laugardaginn 18. september
KR - Fjölnir 16:00

Powerade karla DHL-Höllin
Sunnudaginn 19. september
KR - Stjarnan/KFÍ 19.15


 


Frístundakortið

Mótaplan yngri flokkana 2010-2011

Minniboltamót 2010-2011



Þessi vefur er knúinn af e.c.Web

Höfundarréttur KR ® 2003 - 2010 © Allur réttur áskilinn. Ábendingum og spurningum er beint til karfa@kr.is