Það verða nýkrýndir bikarmeistarar Hauka sem verða andstæðingar KR í undanúrslitum Iceland Express deildar kvenna. Fyrsti leikurinn fer fram í DHL-höllinni á laugardag. Liðin mættust í æsilegri úrslitarimmu sem réðst í oddaleik á síðasta tímabili, en þá höfðu Haukastelpur betur.
Mynd. Hildur Sigurðardóttir fyrirliði KR, mun leiða lið sitt gegn Heather Ezell og félögum í Haukum.
Haukar lögðu Grindvíkinga öðru sinni í kvöld, lokatölur 81-74 og þar með unnu þær seríuna 2-0. Keflvíkingar þurftu framlengingu til að sigra Snæfell í Hólminu en lið Inga Þórs Steinþórssonar stóð heldur betur í meyjunum úr Reykjanesbæ. Keflavík mætir því liði Hamars.
Haukum hafa átt flott tímabil eftir að orðið fyrir mikilli blóðtöku síðasta vetur. Þær enduðu í B-riðli (skipað fjórum neðstu liðunum) en unnu hann sannfærandi. Fyrir skemmstu lögðu þær svo Keflavík í bikarúrslitum í Höllinni. Þær eru með frábæra erlenda leikmenn í Heather Ezell og hina dönsku Kiki Jean Lund. Auk þeira eru þær með Guðrúnu Ámundadóttur, bikarhetjuna Maríu Lind Sigurðardóttur og miðherjana Thelmu Björk og Rögnu Margréti. Þjálfari liðsins er einn sá reynslumesti í íslenskum kvennabolta, Henning Henningsson. Þó svo að KR hafi borið sigur úr bítum í viðureignum liðanna í vetur verður þetta erfitt verkefni. Við fjöllum nánar um undanúrslitin síðar í vikunni.

Reykjarvíkurmót 9. flokkur drengja
11.-12. september - Laugardalshöll
Reykjarvíkurmót 9. flokkur stúlkna
12. september - DHL Höllin
Reykjarvíkurmót 11. flokkur drengja
18.-19. september - Grafarvogi
Reykjarvíkurmót Stúlknaflokki
18.-19. september - Vodafone Höllin
Powerade kvenna DHL-Höllin
Laugardaginn 18. september
KR - Fjölnir 16:00
Powerade karla DHL-Höllin
Sunnudaginn 19. september
KR - Stjarnan/KFÍ 19.15
